Frøslev í 90 ár Um okkur Frøslev Træ er eitt af stærstu fyrirtækjum Danmerkur með birgðahald og vinnslu í tréiðnaði. Við höfum nærri 90 ára reynslu af meðhöndlun og vinn- slu viðar, sem þýðir að vörur okkar bera ávallt vott um faglega þekkingu og mikil gæði. Frøslev Træ er staðsett einum kílómetra norðan við landamæri Þýskalands og Danmerkur og hjá fyrirtækinu starfa í dag um 160 starfs- menn. Við leggjum áherslu á einfalda og náttúrulega hönnun sem passar vel inn í nánast hvaða aðstæður sem er. Viðurinn okkar er vottaður samkvæmt stöðlunum FSC ® og PEFC™. Viðurinn er þrýstifúavarinn samkvæmt norrænu NTR-stöðlunum (NTR, norræna timburverndarráðið), hefur verið prófaður með hliðsjón af umhverfisvernd og samþykktur af dönskum umhverfisyfir- völdum, sem tryggir viðskiptavinum langan endingartíma. 2
Halið niður PDF-skjali